Garg!!! HAHAHA
... svona les maður sjaldnast í stjörnuspánnum sínum. Gott að
fá smá óhefta og beiska skvettu í andlitið....splash



Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær
egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta
aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að
keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert
kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur
þú ert.
Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda
löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru
það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og
skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu
þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.
Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og
yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í
annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda
sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við.
Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og
óþarfa.
Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í
raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig,
nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt
því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú
reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og
hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og
sjálfsvorkunnsamur.
Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn
af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar
ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur
og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú
ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.
Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti
maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki,
en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum,
þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en
stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.
Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og
vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í
fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka
ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of
latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra
fyrir öðrum.
Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og
valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því
einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn,
móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort
frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila
sama lagið.
Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem
grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í
annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð
óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú
nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki
við.
Steingeit (21. desember - 20. janúar): Þú ert stífur og
vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf
að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki
gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með
minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum
og merkjavöru.
Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og
skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur
þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú
ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan
innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns
landi. Týndur á skýi í háloftunum.
Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og
hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í
hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt.
En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir
ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja
raunveruleikann.
Eftir Gunnlaug Guðmundsson, stjörnuspeking.