Tútturnar úr HR
Klukkan
01.10.2007 10:20:07 / Kristín

Very long time ....

Hæ hæ,

 Það er orðið dálítið langt síðan að við hittumst!! 8|

Ég er reyndar ekki viss um að þið kíkið á þessa síðu eitthvað. Sjálf kíki ég ekkert alltof oft :S Kannski ekki virkasta síðan....

Er ekki að fara koma tími á saumó?!?!? Sjálf verð ég erlendis 19. okt. til 23.okt. en það er nú einu sinni þannig að það er oftast ekki möguleiki á að allir komist.

Vonandi bætum við úr og sjáumst fljótlega :haha:

Kveðja,

Kristín


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 17:34:53 / gudrun

Saumó!!!

Halló Túttur,

Ég er að koma til landsins 12.júlí og langaði bara að athuga hvort það sé ekki stemmning fyrir saumó!??

Var ekki síðast haldin saumó í apríl og orðið því alltof langt síðan síðast? Svo er líka búið að bætast í hópinn en ég vænti þess að það bíði allar spenntar yfir því að sjá litlu Aldísi Helgu hennar Elfu (ef þið eruð ekki nú þegar búnar að því!?)

Svo átti Eva María afmæli 14.maí og ég 3.júní og Kristín er líka í júní - man ekki alveg hvaða dag og svo Ragga í maí líka. Langaði bara að óska OKKUR til lukku með afmælin okkar :D

Hlakka til að sjá ykkur í júlí þegar ég kem :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 17:40:14 / Tota

Mega lög í Eurovision

Já, verð að segja að mér finnst lögin í undankeppni Eurovision þetta árið vera alveg MEGA skemmtileg!!

Ekki öll auðvitað, en þau eru mörg. Ég mæli sterklega með eftirfarandi lögum:


JT eftirherma frá Tyrklandi
Diskó frá Belgíu 
MTV tónlist frá Pólandi 
Pönk frá Andorra 
Blues frá Ungverjalandi
Rokk frá Austuríki

Auðvitað er Ísland uppáhalds lagið en ég get ÓMÖGULEGA valið hvað mér finnst skemmtilegast af hinum sem ég nefni hér að ofan... þau eru öll æði!

Það verður mikil barátta að ná Íslandi í gegn... ALLIR AÐ FÁ SÉR NÚMER HJÁ VODAFONE I TÉKKLANDI, SERBÍU OG MOLDÓVÍU!!!

Tjekk it out!


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 08:42:35 / erladogg

Saumó saumó ...


obviously er ég ekki að fara halda saumaklúbb í kvöld.... þannig að

Þriðjudagurinn 17.apríl

varð fyrir valinu:!: - eigum við ekki að segja upp úr hálf20:haha:

btw hvaða regla er í gangi í samb.veigar - var það að klára hringinn eða redda ég þessu bara??


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 20:15:44 / erladogg

Ég er víst næst....*update 9.apríl*



* þar sem lítið hefur verið um response, páskarnir nýbúnir og svona þá var ég að spá í að seinka þessu sammenkomst aðeins - hvað segið þið um núna á fimmtudaginn - eða þriðjudaginn í næstu viku?? Endilega kommentið....


Sælar Túttur
:haha:.

Mig minnir endilega að ég eigi að halda næsta saumó - og þá er það spurning hvenær sá atburður eigi að eiga sér stað:!::haha:

Var svona að spá og spuglera hvort þriðjudagurinn e. viku hljómaði vel ??

Endilega tjáið ykkur og látið mig vita ef heppilegri dagsetning mætti poppa upp.....


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 13:31:26 / gudrun

Vorið er komið!

Halló Túttur nær og fjær!

Það er barasta komið vor hér í Svíalandi og allir í góðu skapi yfir því - enda ekki annað hægt. Það er meira að segja "peysuveður" yfir hábjartan daginn en á kvöldin er ennþá pínu napurt.

Langaði bara að kasta kveðju á ykkur og þakka fyrir síðast. Æðislegar veitingar og alltaf gaman að hitta ykkur.

Leiðinlegt að ég komst ekki með að kveðja Elvu Rut á Austur-Indiafélaginu en ég var bara svo ferlega slöpp að ég lá bara uppí sófa hjá m&p og lét þau dekra við mig. En ég fæ enga morgunógleði heldur er þetta kvöldógleði hjá minni. En þetta er allt koma og ég er öll að hressast.

Vona bara að þið sem mættuð hafi skemmt ykkur vel og ég vona að Elva Rut sé komin heilu og höldnu til Ítalíu og fari nú að segja okkur einhverjar skemmtilegar sögur af ítölsku strákunum ;)

með vorkveðju
Guðrún Svíþjóðartútta


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 17:21:41 / tútturnar

Ný könnun

Jæja steikurnar ykkar. Farið nú og kjósið í könnunninni sem ég var að setja upp og farið svo að heimsækja þessa síðu oftar.

Notandinn minn er eitthvað klikkaður svo ég kommenta alltaf undir túttu, en þetta er ég, Ingibus.


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 11:49:56 / tútturnar

Saumaklúbbur þriðjudaginn 27.febrúar

Sælar Túttur nær og fjær. Það er loksins að maður heiðri þessa síðu með skrifum en ástæðan er sú að nú er komið að mér að halda saumaklúbb. Hvernig hljómar dagsetningin 27.febrúar (þriðjudagur)? Það er ennþá svo mikið sem við Árni eigum eftir að gera í íbúðinni áður en hægt verður að bjóða fólki heim en við stefnum að því að vera búin með sem flest fyrir þessa dagsetningu en þið vitið hvernig þetta er. Við erum hætt að sjá kassana sem við eigum eftir að taka upp úr og fullt af smáatriðum sem þarf að klára. Nú held ég að ég vilji bara taka veitingarnar alfarið að mér og ætla þannig að láta ljós mitt skína. Hugsa að ég verði með "mjög" léttan kvöldverð svona eins og staðan er núna og eitthvað gúmmulaði á eftir. Kemur í ljós, lemur í kjós. Endilega kommentið og látið vita hvort þetta sé ekki bara primadagsetning?

» 8 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 09:25:25 / ragga

Febrúar hittingur?

Jæja yndislegu saumaklúbbssystur. Nú er kominn febrúar og tími kominn til að plana tímasetningu á næsta hitting. Inga, ætlaðir þú ekki að taka hann frá svona í ljósi nýrrar íbúðar og væntanlegrar fæðingar í næstas mánuði? ...allavegana, endilega fara að upphugsa tíma svo allir geti tekið daginn frá "in time" ;)

Adios amigos!

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 22:57:58 / ragga

Útlit

Ég ákvað svona í ljósi þess að nýtt ár er komið vel á veg og við meira að segja búnar að hittast einu sinni á árinu að tími væri kominn til að hætta með jólalúkkið - svo ég breytti í svona blátt og strákalegt af því ég er soddan strákur. Auk þess eru 50% líkur á því að ég sé með typpi! :lol:

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 09:01:42 / Kristín

Saumó fimmtudaginn 18. janúar

Sælar túttur,

Ég er búin að tala við Erlu og henni er alveg sama þó ég fái að halda saumó í þessum mánuði. Vonandi eru allir sáttir við það?!?! Vonandi er ég ekki að troðast yfir tærnar á einhverjum - Eva þú lætur mig kannski vita ef þú hafðir hugsað þér annað.

Ég vildi þá eiginlega bara negla niður daginn fimmtudagur 18. janúar. Látið í ykkur heyra.

Kveðja, Kristín


» 16 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 17:24:00 / ragga

Hver er þessi Skarphéðinn Löve???

Hæ stelpur. Hér er smá svona "tíser" að nýrri SKO herferð ef þið hafið áhuga. Tékk it out með því að smella hér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 15:41:10 / erladogg

Saumó

Sælar skvísur - og gleðilegt nýtt ár:!:

Miða við komment hérna frá henni Evu Maríu þá er ég víst næst á listanum sem á að halda saumó:!:.
Ég var nú bara að pæla í svona *venjulegum* saumó þ.s. Eva planlagði djamm-saumó (nú ef þú Eva vilt skipta þ.e. vera í janúar þá er það fine by me).
Í samb.við dagsetningu þá vær best væri fyrir mig að hafa hann e-n eftir miðjan janúar (á nefnilega von á nýjum sófa þá ef ekkert bregst:!: ).

Endilega komið með hugmyndir af dagsetningum - spurning um síðustu vikuna í janúar þ.e.22-26 janúar - einhverntíman þá.....

Kveðja,

Erla Dögg:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 19:49:24 / Tota

Gleðileg jól

    
GLEÐILEG JÓL STELPUR!!!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 11:36:09 / erladogg

Afmælisbarn dagsins er engin önnur en...

***

Brynja

Innilega til hams með ams c",)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5